Heim           Fréttir          Bjargshóll          Um okkur           Myndir     
 


Svellkaldar konur 25.02.2006
Svellkaldar konur kepptu á ís í skautahöllinni í Laugardalnum. Þórunn keppti á Hörpu frá Bjargshóli, 6 vetra. Ekki gekk sem skyldi í úrslitum, en hryssan lofar góðu.

Vetrarleikar Fáks 18.02.2006
Fyrsta vetrarmót Fáks var haldið 18. febrúar á afmælisdegi Þórunnar! Skráningar voru góðar og mætti fjöldi manns til keppni og áhorfs í blíðskaparveðri. Hestakostur Fáksmanna var góður á þessum fyrstu vetrarleikum. Þórunn stóð sig vel og var efst í kvennaflokki á þessu móti á hestinum Þrist frá Bjargshóli, 6 vetra.

Þorrablót 01.02.2006
Gott fólk, nú er þorrinn genginn í garð með tilheyrandi þorramat; súrum, kæstum, sultuðum, reyktum og sviðnum.
Ekki eru samt nema um 50 ár síðan við hófum þorramatinn til vegs og virðingar.
Vonandi njóta hans sem flestir.
Svo styttist í hið hefðbundna þorrablót Miðfirðinga, en það verður á föstudaginn í Ásbyrgi.
Gaman væri nú að sjá sem flesta vini og ættingja þar!!

Af Eiðfaxavefnum 26.01.2006
Gróska í húnvetnskri hestamennsku.
Það er mikið um að vera hjá húnvetnskum hestamönnum og vetrarstarfið komið á fullt. Fjölmörg hross eru í tamningu og þjálfun í báðum sýslunum og mótarröðin Meistarakeppni Húnvetninga hefst kl. 20:00, nk. föstudag 3. febr. með Töltkeppni í Reiðhöllinni Arnargerði. Öllum er heimil þátttaka og þar verður keppt í þremur flokkum. Skráning fer fram milli kl. 17:00 – 20:00 fimmtudaginn 2. febr. í síma 869 0707 og á gilsi@visir.is. Fram þarf að koma: Knapi, nafn á hesti, aldur, litur, keppnisflokkur, og upp á hvora hönd skal riðið. Næstu mót í mótaröðinni verða 17. febr. Þegar keppt verður í fjórgangi, 3. mars verður aftur töltkeppni og 7 apríl verður keppt í fimmgangi og slaktaumatölti. Austur og Vestur Húnvetningar standa saman að þessari keppni og fjölmenna Vestur - Húnvetningar jafnan til Blönduóss þegar þessi mót eru haldin og hvetja sitt lið vel og skapast oft skemmtileg stemning í höllinni. Húnvetningar standa einnig saman að Stórsýningu húnvetnskra hestamanna, sem í vetur verður laugardaginn 18. mars. Þar verður boðið upp á fjölbreytt sýningaatriðið og mörg hross koma fram. Öflugt unglingastarf er nú hafið á Blönduósi fer það starf fram á vegum Hestamannafélagsins Neista. Leiðbeinendur hafa verið fengnir til starfa og eru þátttakendur margir. Reiðhöllin Arnargerði bíður ungmennum hesthúspláss í hesthúsi Reiðhallarinnar og þar eru hýstir hestar fyrir ungmenni frá Blönduósi og úr nærsveitum.

Nýtt ár 12.01.2006
Oft hafa verið skrifaðar merkilegar fréttir. Sérstaklega þegar eitthvað markvert gerist.

Bjargshóll | 531 Hvammstangi | tel: (+354) 451 2631 | fax: (+354) 451 2632 | email: bjargsholl@bjargsholl.is